Hvassir vindstrengir á sunnan- og austanverðu landinu

Það má búast við hvassviðri undir Eyjafjöllum í kvöld og á morgun og sömuleiðis víða á austanverðu landinu.Víðir Hólm ÓlafssonVegagerðin varar við varhugaverðum akstursskilyrðum um sunnan- og austanvert landið í kvöld og á morgun, einkum við fjöll. Undir Eyjafjöllum, milli Skaftafells og Hafnar, á sunnanverðum Austfjörðum, í utanverðum Fljótsdal og Vopnafirði geta hviður náð allt að 25 metrum á sekúndum.„Slíkur vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind,“ segir í athugasemd frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Hvassir vindstrengir á sunnan- og austanverðu landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd