Handtóku vasaþjófa sem herjuðu á ferðamenn

Lögreglan á Suðurlandi handtók í gær sex erlenda ríkisborgara í tengslum við rannsókn á vasaþjófnaði sem stundaður hefur verið á ferðamannastöðum undanfarnar vikur. Í tilkynningu lögreglunnar á Facebook segir að unnið sé að brottvísun fólksins frá landinu á grundvelli útlendingalaga. Óeinkennisklæddir lögreglumenn handtóku þrjá þjófa við Seljalandsfoss þegar lögreglan var þar við eftirlit. Þá voru þrír handteknir á Selfossi. Þeir voru eftirlýstir vegna gruns um að vera viðriðnir þessa sömu brotastarfsemi.„Áfram er unnið að rannsókn fyrirliggjandi mála og mögulegra tengsla fólksins sem tekið var höndum við þau,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Handtóku vasaþjófa sem herjuðu á ferðamenn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd