Yfirvöld í suðurhluta Hormozgan-héraðs í Íran segja að Bandaríkjaher hafi gert árásir á Qeshm-eyju og Abadan í Persaflóa og fleiri staði í Íran í nótt. Bandaríkjaher segir í færslu á X að herinn hafi gert þungar árásir á hernaðarlega innviði Íranska byltingarvarðarins. Árásirnar hafi verið svör við árásum Írana á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum síðastliðinn þriðjudag, en öll írönsk flugskeyti hafi verið stöðvuð. Yfir 50 þúsund hermenn eru á vegum bandaríska hersins í Mið-Austurlöndum um þessar mundir. Yfirvöld í Sádi-Arabíu kenna vopnuðum fylkingum í Írak um drónaárásir á hráolíuinnviði síðastliðna tvo sólarhringa. Jórdanski herinn segir að hann hafi stöðvar fimm írönsk flugskeyti sem beint var að bandarískum herstöðvum í landinu. Þá saka stjórnvöld í Ísrael Hezbollah-samtökin um