Norðlæg átt ræður ríkjum næstu daga og veðrinu verður nokkuð misskipt eftir landshlutum.Bjartast og hlýjast verður sunnan- og vestanlands og á Vestfjörðum en svalara og vætusamara norðaustan- og austanlands.Það bætir í vind í dag og á morgun og hvassast verður austanlands. Þar má búast við hvössum vindstrengjum við fjöll, einkum austan Öræfa. Því ætti ferðafólk og ökumenn ökutækja sem taka á sig mikinn vind að fylgjast vel með veðurspám og -aðstæðum áður en haldið er af stað, að því er segir í veðurpistli frá Veðurstofunni.Það styttir smám saman upp norðan heiða og á Austurlandi á laugardag en í öðrum landshlutum. Á sunnudag dregur svo úr vindi.Á mánudag má gera ráð fyrir hæglætisveðri en líkur eru á stöku síðdegisskúrum.