Árásir víða í Úkraínu í nótt

Að minnsta kosti átta voru drepnir og tugir særðust í árásum víða um Úkraínu í nótt. Kyiv Independent segir að þrjátíu séu særðir eftir árásirnar.Eldflaugaárás var gerð á hús í þorpi nærri borginni Kryvyi Rih í mið Úkraínu, en fjórir fullorðnir og tvö börn voru drepin í þeirri árás. Átta særðust í sömu árás og yfirvöld óttast að tala látinna eigi eftir að hækka. Árásir voru einnig gerðar á austur Poltava-hérað og á borgina Lviv, en í þeirri árás særðust fimmtán.Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti varaði við því í færslu á X í gærkvöld að Rússar væru búnir að vera með stóra árás í undirbúningi og að það væru líkur á því að árásir yrðu gerðar um nóttina.Rússar hafa gert miklar árásir á Úkraínu undanfarið og í júnímánuði var mesta mannfall meðal almennra borgara í einum mánuði síðan í apríl 202
Árásir víða í Úkraínu í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd