Breska ríkisstjórnin hyggst verja 8,4 milljörðum punda, jafnvirði tæplega 1.400 milljarða íslenskra króna, í næsta áfanga Dreadnought-áætlunarinnar um smíði nýrra kjarnorkukafbáta. Samkvæmt bresku ríkisstjórninni mun fjárfestingin styðja við um 47 þúsund störf og starfsnám á næstu árum.Samkvæmt frétt AFP kemur fram í tilkynningu frá Downing Street, embætti breska forsætisráðherrans, að 5,9 milljarðar punda fari til varnarmálafyrirtækisins BAE Systems sem smíðar fjóra Dreadnought-kafbáta. Um er að ræða nýjan flokk kjarnorkukafbáta sem eiga að leysa eldri Vanguard-kafbáta af hólmi. SEGIR FJÁRFESTINGUNA SKAPA TÆKIFÆRI Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir að verkefnið muni skapa tækifæri fyrir ungt fólk og styðja við atvinnu á fjölmörgum svæðum í Bretlandi. Hann hefur lagt áhersl