Um 8.500 manns sem þurftu að yfirgefa heimili sín á Spáni vegna skógareldanna hafa nú fengið að fara aftur heim til sín. Sumir komu að húsum sínum óskemmdum og þó voru ekki allir svo heppnir.Fólkið flúði heimili sín í Valdemaqueda og Robledo de Chavela í Avila-héraði og frá tveimur borgum nærri Madríd, San Martin de Valdeiglesias and Pelayos, á miðvikudaginn. Íbúar tveggja síðastnefndu borganna, um eitt þúsund manns, fá þó ekki að snúa aftur heim alveg strax.Búið er að ná stjórn á eldunum, en enn á eftir að slökkva síðustu logana. Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar sagði að næstu klukkustundir gætu skorið úr um hvort hægt verði að slökkva alla eldana. NÝIR SKÓGELDAR BLOSSA UPP Í FRAKKLANDI Yfirvöld í Gironde-héraði í Frakklandi segja að eldarnir séu farnir að róast þar en skógareldar