Tala látinna komin í 28 eftir jarðskjálftann

Björgunarfólk að störfum í rústum Nippon-pappírsverksmiðjunnar í Yatsushiro.AP/Kyodo News / Naoki HiraokaYfirvöld í Kumamoto-héraði á Kyushu-eyju í suðvesturhluta Japan segja að 28 séu látnir eftir jarðskjálftann sem varð í Kumamoto á þriðjudag. Á fjórða tug eru slasaðir, þar af ellefu alvarlega.Björgunarsveitir leita enn að fólki í rústum verslunarmiðstöðvar og pappírsverksmiðju sem skemmdust mikið í jarðskjálftanum. Yfir hundrað eftirskjálftar hafa orðið síðasta sólarhring.Íbúar hafa sagt við fréttaveitu AFP að skjálftinn sé einn sá öflugasti sem þeir hafi fundið, en skjálftinn var 7,1 að stærð samkvæmt japönsku veðurstofunni.Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna.
Tala látinna komin í 28 eftir jarðskjálftann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd