Níu voru drepnir og fjórtán særðust í drónaárás RSF-uppreisnarhersins á þorp í Norður-Kordofan í Súdan í gærmorgun. RSF-uppreisnarherinn er að reyna að umkringja borgina El-Obeid og Sameinuðu þjóðirnar óttast að gerð verði mikil árás á borgina.Uppreisnarherinn hefur reynt að ná tökum á Norður-Kordofan-héraði í nokkra mánuði. Yfir eitt þúsund almennir borgarar hafa verið drepnir í drónaárásum í héraðinu á þessu ári í átökum á milli uppreisnarhersins og súdanska hersins.Bæði súdanski herinn og RSF uppreisnarherinn hafa verið sakaðir um grimmdarverk í stríðsátökunum í Súdan sem hafa staðið yfir síðan í apríl 2023. Talið er að yfir 200.000 hafi verið drepin í átökunum.Tugmilljónir hafa þurft að flýja heimili sín og þurfa á mataraðstoð að halda, kynferðisofbeldi og pyntingum er beitt með skipul