„Knúsfundur“ Trumps með Pútín hafi skilað litlu

Merkja má aukinn stuðning Bandaríkjastjórnar gagnvart Úkraínu eftir leiðtogafund forseta ríkjanna tveggja í Washington í gær. Úkraínumenn fá að framleiða bandarískar loftvarnaflaugar, sem þá sárlega vantar gegn eldflaugaárásum Rússa á Úkraínu.Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir það þýðingarmikið fyrir Úkraínumenn sem hafi orðið fyrir auknum árásum Rússa að undanförnu.Mögulega kunni aukin velgengni Úkraínumanna að skýra velvild MAGA-hreyfingarinnar og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í garð þeirra. Almennt sé auðveldara að bakka sigurvegara.„Ég held að það megi líka ráða í það þannig að eftir að Trump átti þennan knúsfund með Pútín í Alaska á síðasta ári - hann hefur ekki fengið neitt út úr því í raun og veru. Pútín hefur ekki gefið honum neitt sem hann var að kalla eftir.“
„Knúsfundur“ Trumps með Pútín hafi skilað litlu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd