„Við fengum hringingu frá skólanum klukkan tvö í gær um að Erica væri týnd og við þyrftum að koma og leita,“ segir Camilla Lilly Sigmundsdóttir í samtali við mbl.is en þau Markús Jónsson maður hennar urðu fyrir miður skemmtilegri lífsreynslu í Næsby í Óðinsvéum í gær.