Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir það ljóst að þau viðbrögð að einblína fyrst og fremst á refsingar til að bregðast við afbrotum dugi skammt. Þar er Grímur einkum að vísa til afbrota, til að mynda þjófnaða, sem eiga rætur sínar í fíknivanda viðkomandi.