Lögregla stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í Hlíðahverfi Reykjavíkur sem keyrði á nánast tvöföldum hámarkshraða. Hraði hans mældist 87 kílómetrar á klukkustund þar sem hæsti leyfilegi hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Málinu var lokið á staðnum með greiðslu sektar.