Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu er nýlokið en annað heimsmeistaramót er fram undan, heimsmeistaramót í púsluspilum sem verður á Spáni í september. Mæðginin Signý Gunnarsdóttir og Gunnar Hrafn Sveinsson, sem er tvítugur, ætla að leggja land undir fót og keppa á mótinu. Þau voru gestir Fram undan í morgun.Mæðginin hafa lengi púslað saman og finnst það góð samvera. Þau stefna á að lenda ekki í neðsta sæti og vonast til að komast í undanúrslit.„Gunnar var langveikt barn. Afþreying hjá langveikum börnum verður oft svolítið hæg þannig að hann var mikið með legó og að púsla. Langveik börn þróa oft með sér ótrúlega seiglu, þolinmæði og æðruleysi. Gunnar var bara fjögurra ára þegar hann kláraði 500 bita púsl einn,“ segir Signý.Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.