Hagnaður Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi var 7.069 milljónir króna sem er aðeins minna en á sama tíma á síðasta ári. Þá var hagnaður í árshlutanum 7.192 milljónir. Arðsemi árshlutans er einnig svipuð, 13,3% á síðasta ársfjórðungi til samanburðar við 13% árið 2025.Greint er frá þessu í tilkynningu frá Íslandsbanka.Haft er eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, að afkoma hafi verið traust og í meginatriðum í samræmi við væntingar.„Afkoma af kjarnastarfsemi sýnir að undirstöður rekstrarins eru sterkar. Óvissa í alþjóðlegu umhverfi, sveiflur á erlendum mörkuðum og minni umsvif á innlendum fjármagnsmarkaði höfðu hins vegar neikvæð áhrif á þóknanatekjur á fjórðungnum.“ STJÓRNUNARKOSTNAÐUR HÆKKAÐI UM 800 MILLJÓNIR Hreinar vaxtatekjur námu 15,3 milljörðum króna á síðasta ársfjó