Fjölskylda á ferðalagi um Vestfirði reiknaði með því versta þegar hún horfði á bíl velta niður hlíðar Bolafjalls um þrjúleytið í dag. Þau trúðu ekki sínum eigin augum þegar þau sáu konu skríða út úr bílflakinu sem var í algjörri klessu. Ótrúlegt en satt er konan aðeins slösuð á handlegg.