Anthony Fauci, fyrrverandi sóttvarnalæknir Bandaríkjanna, neitaði að svara spurningum á fundi öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag um uppruna covid. Hann sakaði þingmenn Repúblikana um að reyna að leggja fyrir sig gildru.Tilgangur fundarins var meðal annars að kanna hvort Fauci hefði áður gefið þinginu rangar upplýsingar um heimsfaraldurinn. Fauci var einn helsti talsmaður bandarískra stjórnvalda meðan á heimsfaraldrinum stóð. Hann deildi reglulega opinberlega við Donald Trump Bandaríkjaforseta um viðbrögð stjórnvalda við veirunni. BAR FYRIR SIG FIMMTA VIÐAUKA BANDARÍSKRAR STJÓRNARSKRÁR Fauci neitaði að svara spurningum fulltrúa Repúblikanaflokksins á fundinum. Hann sagðist óttast að þingmenn flokksins reyndu að fá hann til að segja eitthvað sem stangaðist á við fyrri framburð hans.Í þv