Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi var 8,1 milljarður króna. Á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 9,8 milljarðar króna. Hagnaður á fyrstu sex mánuðum ársins var 15,4 milljarðar króna, samanborið við 16,2 milljarða króna á síðasta ári.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.„Afkoma annars ársfjórðungs var góð og náðum við öllum okkar fjárhagslegu markmiðum, þar með talið markmiði um samsetningu eiginfjár,“ er haft eftir Benedikti Gíslasyni, bankastjóra Arion banka. REKSTRARKOSTNAÐUR AUKIST Arðsemi eigin fjár var 15,5% á öðrum ársfjórðungi en 19,7% árið 2025. Þá skilaði rekstur Varðar 500 milljón króna hagnaði til samanburðar við 800 árið á undan.Ekki voru allar tölur lægri á síðasta ársfjórðungi en 2025. Kjarnatekjur jukust um 0,8% og lán til viðskiptavina jukust um 65,4 mil