Rússnesk yfirvöld hafa lýst eftir Pavel Durov, stofnanda og forstjóra samskiptaforritsins Telegram. Þau saka hann um aðild að hryðjuverkum með því að hafa leyft Úkraínumönnum að nota forritið til liðs við sig.Dubrov, sem er 41 árs, fæddist í Rússlandi en hefur búið erlendis um árabil. Hann er með franskt vegabréf og einnig frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.Telegram er meðal mest notuðu samskiptaforrita í Rússlandi. Yfirvöld þar í landi hafa ítrekað reynt að takmarka aðgang almennings að forritinu og þrýst á Durov að afhenda þeim upplýsingar um notendur. SAMFÉLAGSMIÐLASTRÍÐ MILLI RÚSSLANDS OG ÚKRAÍNU Rússneska öryggisþjónustan FSB segist hafa sent frá sér tilkynningu þar sem lýst er eftir Durov á alþjóðavettvangi. Eðli tilkynningarinnar er óljóst og sömuleiðis er alls óvíst hvort og h