Bílvelta á Bolafjalli: Ökumaður með lítilsháttar áverka

Betur fór en á horfðist þegar bíll fór út af veginum á Bolafjalli við Bolungarvík og valt um 200 metra niður. Ökumaður slapp með minni háttar áverka en bíllinn er að öllum líkindum ónýtur.Þetta staðfestir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði.Lögreglunni á Vestfjörðum var tilkynnt að bíll hefði oltið á Bolafjalli á þriðja tímanum. Lögregla og tveir sjúkrabílar fóru á vettvang og björgunarsveit og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út.Allt viðbragð var afturkallað þegar þeir fyrstu komu á vettvang. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar.Tildrög slyssins eru ókunn.Fréttin var uppfærð.
Bílvelta á Bolafjalli: Ökumaður með lítilsháttar áverka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd