Ekki hefur sést til minka í meira en 500 metra fjarlægð við Dalsbú. „Nú er mest verið að vinna innan þessarar öryggisgirðingar. Það er búið að kortleggja þetta með drónum og hitamyndavélum þannig að þetta lítur talsvert betur út en það gerði í morgun,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ.Þegar búið er að ná tökum á ástandinu innan girðingarinnar verður notast við hunda og búr utan hennar. „Við krossleggjum fingur að þetta dreifi sér ekki hér um alla sveit. Við erum vongóð.“Hilmar ræddi við fréttastofu eftir fund aðgerðastjórnar á Gljúfrasteini. Í henni sitja meðal annars fulltrúar bæjarfélagsins, slökkviliðs, lögreglu og MAST. Hilmar segir að á fundinum hafi viðbragðsaðilar samræmt upplýsingagjöf sín á milli.Hann segir ástandið betra en útlit var fyrir í morgun.