Samkeppniseftirlitið heimilar Brimi að kaupa Lýsi

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á kaupum Brims hf. á Lýsi hf. er lokið og kaupin hafa verið heimiluð. Samruni fyrirtækjanna þykir ekki hafa skaðleg útilokunaráhrif á keppinauta þeirra.„Kaup Brims hf. á öllu hlutafé Lýsis hf. fela í sér samruna í skilningi samkeppnislaga en samrunaaðilar starfa á ólíkum sölustigum og tengsl þeirra eru fyrst og fremst lóðrétt, einkum á hráefnismarkaði þar sem Brim selur sjávarafla og aukaafurðir en Lýsi og dótturfélög þess kaupa og nota hráefni til frekari vinnslu,“ segir í úrskurði Samkeppniseftirlitsins.Brim greindi frá kaupunum í júní í samrunatilkynningu. Samkvæmt Samkeppniseftirlitinu dugði stutt samrunatilkynning vegna þess að samruni fyrirtækjanna er lóðréttur og markaðshlutdeild þeirra minni en 40%.
Samkeppniseftirlitið heimilar Brimi að kaupa Lýsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd