Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, hefur lokið úttekt á framleiðsluaðstöðu Alvotech í Reykjavík og gerir engar frekari athugasemdir við félagið eða framleiðsluleyfi þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alvotech.Matvæla- og lyfjaeftirlitið gerði í vor athugasemdir sem Alvotech sagði ekki krefjast veigamikilla breytinga eða viðbragða. Í nóvember í fyrra gerði eftirlitið töluverðar athugasemdir við hreinlæti í aðstöðu Alvotech.„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir félagið og endurspeglar mikilvægi þeirrar vinnu sem starfsmenn okkar hafa lagt í að styrkja gæða- og framleiðslukerfi félagsins,” er haft eftir Lisu Graver, forstjóra Alvotech, í tilkynningunni.„Niðurstaðan fullvissar okkur um að þær aðgerðir sem við höfum gripið til svari fyllilega þeim athugasemdum FDA sem fram komu í ú