Ísland er langt á eftir hinum Norðurlöndunum hvað varðar myndtúlkun og túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa, segir Daði Hreinsson, formaður Félags heyrnarlausra. Menningarhátíð sem þessi er haldin á fjögurra ára fresti og fer á milli Norðurlandanna. Síðast var hún hér á landi árið 2006 og þá haldin á Akureyri en nú er það Selfoss.„Það koma bæði fyrirlesarar og leiklistarhópar frá Norðurlöndunum til að halda uppi öflugu og skemmtilegu menningarstarfi og auðvitað fer þetta allt fram á táknmáli. Þetta er náttúrulega bara fyrir fólk að hittast og njóta viðburða á sínu tungumáli, það er að segja táknmálinu,” segir Daði.Daði segir að heimamenn á Selfossi þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur sjái þeir hópa af fólki sem er að tákna af miklum krafti, þau séu bara að spjalla, hlæja og njóta lífsins. Þá er