Björgunarsveitir í Japan leita að fólki í rústum verslunarmiðstöðvar og pappírsverksmiðju sem skemmdust mikið í hörðum jarðskjálfta í gær.Að minnsta kosti þrettán létust og á fjórða tug slösuðust í skjálftanum, sem var af stærðinni 7,1. Hann varð í Kumamoto-héraði á Kyushu-eyju í suðvesturhluta Japan.Skjálftinn olli miklu tjóni – hús hrundu, eldar kviknuðu og tugir þúsunda íbúa eru án rafmagns og vatns. Rúmlega níu þúsund hafa leitað skjóls í yfir 500 fjöldahjálparmiðstöðvum í þremur héruðum á Kyushu. ÍBÚAR SEGJAST ALDREI HAFA UPPLIFAÐ JAFN ÖFLUGAN SKJÁLFTA Sprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Kashima í Kumamoto stuttu eftir jarðskjálftann og önnur hæð byggingarinnar hrundi. Þrír létust og fjögurra er saknað.Fimm létust í pappírsverksmiðju í borginni Yatsushiro þegar hluti af reykh