Hafdís Huld verður bæjarstjóri í Fjallabyggð

Hafdís Huld Björnsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri í Fjallabyggð. Hún tekur við starfinu af Þóri Hákonarsyni sem hefur gegnt starfinu frá því í desember 2024.Hafdís hefur starfað sem framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins RATA og mun hefja störf í Fjallabyggð þann 1. september.22 sóttu um starfið, þar á meðal Þórir, núverandi bæjarstjóri.Á vef Fjallabyggðar segir: „Hafdís Huld er með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) og BS-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun. Hún hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, verkefnastjórnun og breytingastjórnun.“Hafdís Huld er næsti bæjarstjóri í FjallabyggðFjallabyggd.is / Cat Gundry-Beck
Hafdís Huld verður bæjarstjóri í Fjallabyggð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd