Sveitarfélagið Skagafjörður greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gær að útlit væri fyrir að skaðleg efni hefðu komist í Sauðá, sem rennur um Sauðárkrók. Fólk var beðið að sýna aðgát og forðast snertingu við vatnið. Heilbrigðisfulltrúi vaktaði na frá því í gærkvöld og nú er hún aftur orðin hrein og tær.„Sem betur fer er áin bara búin að hreinsa sig. Svo um leið og sjávarföllin – svo byrjaði að rigna, það er ekki oft sem ég fagna rigningunni en nú finnst mér rigningin góð – þá náði hún að koma með vatn sem er í þessu fráveitukerfi til þess að ýta þessu rólega í burtu,“ segir Svavar Sigurðsson, fulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. LÍKLEGA MÁLNING SEM VAR HELLT Í NIÐURFALL Líklegast er talið að einhver á Sauðárkróki hafi misst eða hellt málningu í niðurfall sem liggur út í á