„Hundruð eða þúsundir dýra hlaupandi laus inni í húsinu“

„Þarna voru hundruð eða þúsundir dýra hlaupandi laus inni í húsinu.“ Þetta segir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri um aðkomuna í Dalsbúi í Mosfellsdal í morgun. Búr dýranna og húsin höfðu verið opnuð.Ásgeir segir þúsundir minka enn lausa inni á búinu og fyrir skemmstu voru hundruð minka í öryggisgirðingunni í kringum búið. „Síðan er búið að veiða og aflífa hundruð dýra líka í nágrenni búsins,“ segir hann.Þegar búið er að tæma öryggisgirðinguna verður hægt að nota hunda til að finna minka utan hennar. 10-12 ÞÚSUND MINKAR Lögreglu barst tilkynning rúmlega sjö í morgun um að fjölda minka hefði verið sleppt út. Á bilinu 10-12 þúsund dýr voru á búinu en Ásgeir veit ekki töluna á þeim sem hafa verið fönguð og drepin.Lögregla hefur heimild til að rannsaka húsbrot og möguleg eignaspj
„Hundruð eða þúsundir dýra hlaupandi laus inni í húsinu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd