Keníska náttúruverndarstofnunin KWS rannsakar nú dularfullan dauða 15 afríkufíla. Fílarnir fundust látnir í suðurhluta Kenía nærri Amboseli-þjóðgarðinum.Ekki liggur fyrir nein skýr dánarorsök en hræ fílanna eru nú til rannsóknar hjá KWS. Vefsýni úr hræunum geta varpað ljósi á hvort sjúkdómur eða eitrun hafi orðið þeim að bana eða hvort aðrir þættir hafi mögulega haft áhrif.Samkvæmt yfirvöldum í Kenía er þetta í fyrsta sinn í áratugi sem svo margir fílar hafa drepist á svæðinu en stjórnvöld hafa náð ágætum tökum á veiðiþjófnaði sem um áraraðir þreifst á svæðinu.Fílarnir sem drápust eru allir á mismunandi aldri og af báðum kynjum. Þetta bendir til þess að dauðsföllin takmarkist ekki við einn stofn eða aldurshóp. Hræin fundust á mismunandi stöðum í kringum Amboseli-þjóðgarðinn.Þjóðgarðurinn e