Tuttugu drengir frá Eþíópíu horfnir eftir Gothia Cup

Ekkert er vitað um ferðir fótboltaliðs frá Eþíópíu sem tók þátt í alþjóðlega fótboltamótinu Gothia Cup í Gautaborg í Svíþjóð fyrr í þessum mánuði.Í hópnum voru um tuttugu drengir og fararstjórar. Sænska lögreglan telur hópinn hafa ákveðið að láta sig hverfa.Drengirnir eru á aldrinum 14 til 17 ára, að því er fram kemur í tilkynningu sænsku lögreglunnar. Með þeim eru einn eða fleiri fararstjórar. MÓTINU LAUK FYRIR ELLEFU DÖGUM SÍÐAN Samkvæmt frétt Göteborgs-Posten gisti eþíópíska liðið í skóla meðan á mótinu stóð, líkt og venjan er. Á lokadegi mótsins, 18. júlí, komst starfsmaður skólans sem liðið gisti í að því að hópurinn hafði yfirgefið án þess að tilkynna brottför líkt og gert hafði verið ráð fyrir.Forsvarsmenn Gothia Cup höfðu þá samband við lögreglu sem lýsti eftir hópnum. Lögregla
Tuttugu drengir frá Eþíópíu horfnir eftir Gothia Cup

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd