Ekkert lát virðist á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Skráð tilfelli fóru í gær í 3.262 og er það næstum því til jafns við versta faraldurinn í landinu. Vitað er til þess að 1.437 hafa dáið vegna veirunnar en skráningar eru að öllum líkindum langt frá því að ná utan um raunverulega útbreiðslu veirunnar.