Prófessor í ónæmisfræði segir notkun peptíða án þess að ráðfæra sig við lækni geta verið lífshættulega. Enn er verið að kortleggja möguleg skaðleg áhrif slíkrar notkunar.Sýnishorn af ólöglegum peptíðum sem tollgæslan lagði hald á og sendi til greiningar erlendis innihéldu mikil óhreinindi. Ómögulegt var að staðfesta hvort hluti sýnishornanna innihéldi virku lyfjaefnin sem þau voru sögð innihalda.„Þegar fólk er að nota þetta ekki samkvæmt læknisráði og ekki frá virtum framleiðendum eftir ströngum framleiðsluskilyrðum er það að hleypa hættunni heim,“ segir Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Hann bendir á að í þessum efnum hafi fundist arsen, blý og óhreinindi.„Það hafa hreinlega verið í þessu bakteríur þannig að fólk hefur smitast og fengið lífshættulegar sý