Hviðóttur vindur á Austfjörðum

Í dag gengur á með norðankalda eða jafnvel strekkingi og rigningu á Norður- og Austurlandi, en annars hægari vindar og yfirleitt bjartviðri og þurrt. Hiti 6 til 17 stig, mildast sunnan- og vestanlands.Síðdegis er búist við hviðóttum vindi á sunnanverðum Austfjörðum síðdegis, sem getur verið varasamt fyrir þá sem eru á ökutækjum með tengivagna.Á morgun dregur úr norðanáttinni og rignir öðru hvoru á norðaustanverðu landinu en hvessir aftur um kvöldið. Annars yfirleitt bjartviðri og áfram svipað veður á föstudag.Um verslunarmannahelgina er búist við norðanstrekkingi og vætusömu veðri fyrir norðan og austan. Í öðrum landshlutum verður hins vegar þurrt og bjart með köflum.Veðurspáin gerir ráð fyrir hæglætisveðri á frídegi verslunarmanna með smá skúrum á víð og dreif og mildum hitatölum um mesta
Hviðóttur vindur á Austfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd