13 látnir eftir jarðskjálftann

Enn er verið að reyna að bjarga fólki úr rústum verslunarmiðstöðvar sem hrundi að hluta í skjálftanum.EPA / JIJI PRESSAð minnsta kosti 13 eru látnir og 36 slasaðir, þar af sjö alvarlega, eftir jarðskjálftann sem reið yfir suðvestur Japan í gær. Yfir 9.100 hafast við í 506 rýmingarmiðstöðvum.Jarðskjálftinn átti upptök sín um tuttugu kílómetra suður af Kumamoto, stærstu borg Kyushu, sem er þriðja stærsta eyja Japans. Enn eru margir fastir í rústum verslunarmiðstöðvar í Kumamoto sem hrundi að hluta í skjálftanum og í pappírsverksmiðju en björgunarfólk vinnur hörðum höndum að því að bjarga fólki úr rústum.Bandaríska jarðvísindastofnunin sagði skjálftann upphaflega 7,1 að stærð en breytti því síðan í 6,8.
13 látnir eftir jarðskjálftann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd