Árásir á ný eftir nokkurra daga hlé

„Hefnd er óumflýjanleg,“ stendur á götuskilti í Teheran. Íranar hófu árásir á ný á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum í kvöld eftir nokkurra daga hlé.EPA / ABEDIN TAHERKENAREHBandaríkjaher og her Sádi Arabíu gerðu árásir á hernaðarlega innviði víða í Íran í nótt. Árásirnar eru sagðar svar við árásum Írana á herstöðvar Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum fyrr í kvöld samkvæmt færslu hersins á X.Bandaríski herinn greindi frá því í annarri færslu á X fyrr í kvöld að herinn hefði skotið niður fjölda íranskra flugskeyta sem beint var að herstöðvum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og því hefðu árásir Írana mistekist. Ekki kemur fram að hvaða herstöð árásirnar beindust.Árásir milli Bandaríkjanna og Írans lágu niðri yfir helgina og fram að árásum Írana fyrr í kvöld eftir nær tveggja vikna árás
Árásir á ný eftir nokkurra daga hlé

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd