„Það þarf ekki að koma á óvart að hún sýni ekki mikil viðbrögð,“ sagði Agnar Már Másson, fréttamaður Sýnar, um viðbrögð Ming Ting Mancel við dómsuppkvaðningu í dag. Agnar hefur fylgt málinu frá upphafi og var meðal annars viðstaddur þinghald málsins. Að sögn hans hefur skortur á hluttekningu einkennt fas Mancel hingað til.