Innbrotum og þjófnuðum í miðborg Reykjavíkur hefur fjölgað verulega í sumar. Lögreglan telur sig þó hafa náð tökum á ástandinu eftir að þrír af umsvifamestu innbrotsmönnunum voru settir í síbrotagæslu. Þetta kom fram á samráðsfundi um nágrannavörslu og öryggismál sem Reykjavíkurborg og lögreglan héldu í Ráðhúsinu í dag.Samkvæmt tölum frá lögreglunni þrefaldaðist fjöldi innbrota í miðborginni á milli apríl og júlí, en þau fóru úr ellefu í um þrjátíu. Á sama tíma voru tilkynnt 62 önnur þjófnaðarmál sem var helmingi meira en í aprílmánuði. FÓLK MEÐ FÍKNIVANDA BER ÁBYRGÐ Á FLESTUM INNBROTUM Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögregluþjónn útskýrði á fundinum að um ákveðna hringrás væri að ræða. Fólk með alvarlegan fíknivanda bæri ábyrgð á flestum innbrotunum og hefði lífsviðurværi sitt af því að