Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg við Arnarnesháls eru fyrsta skrefið í uppbyggingu nýs hverfis í Garðabæ. Íbúar í nágrenninu hafa gagnrýnt áformin.Deiliskipulag Arnarlands, nýs íbúahverfis í Garðabæ, var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 6. mars. Landið afmarkast af Hafnarfjarðarvegi til vesturs, Arnarnesvegi til suðurs, Fífuhvammsvegi til austurs og sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs til norðurs.Íbúar í nágrenni við Arnarland hafa stofnað Facebook-síðu undir nafninu Arnarland athugasemdir íbúa þar sem margir hverjir lýsa áhyggjum af þéttri og hárri byggð. Til stendur að reisa um 450 íbúðir á reitnum. TEKIÐ HAFI VERIÐ TILLIT TIL ÁBENDINGA Í SKIPULAGSFERLI Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að þrjú ár hafi verið tekin í skipulagsvinnu og á þeim tíma hafi verið tekið