Ellefu ára stúlka brotnaði á báðum úlnliðum eftir að hafa skotist af hoppubelg í Stykkishólmi í kjölfar þess að fullorðinn maður hoppaði á belgnum af fullum krafti. Móðir stúlkunnar segir að fjölskyldan sé manninum ekki reið, ljóst sé að hann hafi ekki gert þetta viljandi heldur í hugsunarleysi.