Íslands-Lúpínan

Hún er hötuð af fólki sem þykist vita. Íslandslúpínan er tákn dagsins í dag, hún breytir örfoka landi og gefur því lífríki, hún skapar náttúrulega velmegun þar sem land leyfir sér að fjúka á haf út. Lúpínan er í mínum huga eins og vakningin sem í dag er nauðsynleg, vakning í heimi þar sem hugsandi fólki er sagt að halda kjafti svo það móðgi ekki hina heimsku hjörð. Lúpínan er viðvörun og gleðigjafi. Hún er nýtt og notadrjúgt sjónarhorn. Það er þannig með Íslandslúpínuna að hún gerir allt sitt gagn ef hún fær að vera frjáls.
Íslands-Lúpínan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd