Langar bílaraðir myndast oft, stundum alveg upp að Kögunarhóli á móts við Ingólfsfjall, þegar ökumenn og þeirra fólk í bílunum eru að fara á Selfoss eða lengra austur og er tappinn alltaf við Ölfusárbrú.Það sem tefur líka er að það má aðeins eitt þungt ökutæki vera á brúnni í einu vegna þess hversu gömul og lúin hún er orðin. Oft þarf að bíða í 15 og jafnvel upp í 30 mínútur eftir að komast yfir brúna.Hvað segir bæjarstjóri Árborgar, Bragi Bjarnason, um málið?„Við verðum að sýna þolinmæði og bendum fólki líka á að nýta sér Þrengslin og þær leiðir inn í sveitarfélagið okkar þannig að þá getum við kannski létt aðeins á umferðinni,” segir Bragi.Já, þú hvetur fólk til að fara Þrengslin?„Já við eigum að nýta okkur það, sérstaklega svona yfir sumartímann, sérstaklega seinni part dags, þá er mjög