Mögulega málning komist í Sauðá

Sveitarfélagið Skagafjörður greindi frá mögulegri mengun í Sauðá í Skagafirði á Facebook í dag. Í tilkynningunni segir að mögulega hafi efni komist í ána og að þau berist nú niður með henni. Talið er að málning hafi með einhverjum hætti borist í ána, þetta segir Svavar Sigurðsson heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Vestra í samtali við fréttastofu. „Okkur sýnist þetta vera hefðbundin málning en ekki olíumálning, sem betur fer.“ HVETUR ÍBÚA TIL AÐ HAFA SAMBAND GETI ÞEIR VEITT FREKARI UPPLÝSINGAR Svavar segir þó að ekkert sé vitað fyrir víst og hvetur hann íbúa eindregið til þess að hafa samband hafi þeir einhverjar upplýsingar sem varpi frekara ljósi á málið. „Ef einhver íbúi hefur lent í því að missa eða hella óvart niður málningu þá vil ég gjarnan vita hversu mikið mag
Mögulega málning komist í Sauðá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd