Fjöldi fólks lagði leið sína á flug- og fornbílahátíðina Flug og fákar sem var haldin í þriðja sinn á Egilsstaðaflugvelli sunnudaginn 26. júlí. Sólin skein og áhugaverðir farkostir voru skoðaðir gaumgæfilega af ungum sem öldnum – sem og forseta lýðveldisins, Höllu Tómasdóttur, sem var á meðal gesta að þessu sinni.