Héraðssaksóknari fer fram á gæsluvarðhald yfir Ming Ting Mancel, sem var í dag dæmd í tólf ára fangelsi í Edition-málinu. Var hún sakfelld fyrir manndráp og brot í nánu sambandi í samráði við eiginmann sinn. Hún hefur ákveðið að áfrýja dómnum. Verði varðhaldskrafan samþykkt verður hún í varðhaldi þar til endanleg niðurstaða í málinu liggur fyrir.