Sækjandi krefst gæsluvarðhalds yfir Mancel

Karl Ingi Vilbergsson, sækjandi í Edition-málinu, segir kröfu um gæsluvarðhald á hendur Ming Ting Mancel þegar hafa verið gerða.Hann gerir ráð fyrir því að krafan verði lögð fyrir dómara í kvöld eða á morgun.Mancel var dæmd í tólf ára fangelsi í dag. Hún var ákærð fyrir manndráp í samverknaði við eiginmann sinn og brot í nánu sambandi.Að uppkvaðningu lokinni yfirgaf Mancel dómshúsið þar sem hún er hvorki í gæsluvarðhaldi né farbanni.Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi í málinu, segir Mancel hyggjast áfrýja dómnum til Landsréttar.
Sækjandi krefst gæsluvarðhalds yfir Mancel

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd