Þrír slökkvibílar sinntu útkalli vegna minniháttar elds í nágrenni við Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en sneru við áður en þeir komu á vettvang. Eldurinn kviknaði í grindverki við skólann en upptök eldsins eru ekki vituð.Þetta staðfestir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.Íbúi í nágrenninu slökkti eldinn með garðslöngu og afþakkaði aðstoð slökkviliðs.Fréttin var uppfærð.