HS Orka hefur keypt vatnsaflsvirkjunina Múlavirkjun í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Stærsti eigandi Múlavirkjunar hf. var Eggert Kjartansson, bóndi á Hofsstöðum.Kaupsamningur var undirritaður á Búðum á Snæfellsnesi í dag.Múlavirkjun var formlega gangsett árið 2005. Uppsett afl hennar er 3,2 MW. Þetta er fyrsta virkjun HS Orku á Vesturlandi.„Við þekkjum Múlavirkjun vel og vitum að við erum að taka við góðu búi. Við höfum átt í farsælu samstarfi við fyrri eigendur og við munum leggja okkur fram um að eiga áfram í góðu samstarfi við samfélagið á Vesturlandi,“ er haft eftir Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra HS Orku, í tilkynningu.Þrír bændur í héraði stóðu að framkvæmd virkjunarinnar sem miðlar vatni sem tekið er við upptök Straumfjarðarár þar sem hún fellur úr Baulárvallavatni og H