Drunur frá sprengingum eða vinnuvélum hafa verið hluti af hversdegi Norðfirðinga síðustu misseri, eða síðan 2024 þegar framkvæmdir hófust við lokaáfanga snjóflóðavarna ofan Neskaupstaðar.Vinna við varnargarða ofan við bæinn hefur gengið vel í sumar og er á undan áætlun. Fjórtán varnarkeilur hafa risið ofan bæjarins og síðasti þvergarðurinn af fjórum er nær fullbyggður.Alls eiga að rísa fjórir stærðarinnar þvergarðar og tuttugu ofanflóðavarnakeilur, en verkinu var flýtt eftir að snjóflóð féllu á óvarin hús í mars 2023.Svanur Freyr Árnason, sem stýrir skipulags- og framkvæmdasviði hjá Fjarðabyggð, segir farið að sjá fyrir endann á vinnunni þetta sumarið.„Það er búið að setja 14 keilur af 20 og verið að sá í fláa og annað á bæði þvergarða og keilur jafnóðum og það kemur upp. Þvergarðurinn er