Leiðtogar Bandaríkjanna og Ísraels funda í Bandaríkjunum í dag, í fyrsta sinn frá því átök brutust út í Mið-Austurlöndum í febrúar. Samskipti milli þeirra hafa stirðnað undanfarna mánuði. Talið er að þeir ræði bæði stöðu stríðsins við Íran og vendingar fyrir botni Miðjarðarhafs.Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, fundar með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í Washington í dag. Búist er við því að stríðið í Mið-Austurlöndum, sem hófst með árásum ríkjanna tveggja á Íran í lok febrúar, verði helsta umræðuefni fundarins. LÝSTI NETANJAHÚ SEM „MJÖG ERFIÐUM MANNI“ Eftir undirritun viljayfirlýsingar um friðarsamkomulag í júní og vopnahlé frá því í apríl færðust árásir aftur í aukana. Bandaríkin og Íran gerðu árásir hvort á annað á víxl í tvær vikur en nú segjast bandarísk