Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í tólf ára fangelsi. Hún var ákærð fyrir að bana dóttur sinni Catherine Mancel á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025.Hún var ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns.Mancel ætlar að áfrýja dómnum að sögn verjanda hennar, Ómars Arnar Bjarnþórssonar.Fjölskyldan var á ferðalagi um Ísland en hún ættuð frá Frakklandi og var búsett á Írlandi. Mancel hefur sagt að fjölskyldan hafi ákveðið að koma til Íslands til að deyja saman.Hugmyndin hafi kviknað því eiginmaður hennar hafi verið með banvænan sjúkdóm.Ítarlega var fjallað um dularfullan harmleik Mancel-fjölskyldunnar í þættinum Sögur úr raunveruleikanum sem má hlusta á í spilaranum hér að neðan.Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í 12 ára fangelsi fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hótelinu í Reyk